Mál í kynningu


10.7.2020

Endurnýjun búnaðar og aukin framleiðslugeta eggjabús Vallár á Kjalarnesi, Reykjavík og Hvalfjarðarsveit

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

Frestur til athugasemda er til 27. júlí 2020.

Stjörnuegg hf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar endurnýjunar búnaðar og aukinar framleiðslugetu eggjabús Vallár á Kjalarnesi.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 27. júlí 2020 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is