Mál í kynningu


1.12.2023

Færsla Hringvegar í Mýrdal

Umhverfismat framkvæmda – Kynning umhverfismatsskýrslu

Umsagnarfrestur er til 29. janúar 2024 

Vegagerðin hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu vegna umhverfismats Hringvegar í Mýrdal.

Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar.

Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg á Skipulagsgátt .

Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn í gegnum Skipulagsgáttina eigi síðar en 29. janúar 2024.

Kortasjá með framlögðum valkostum og viðauka með umhverfismatsskýrslu má finna á eftirfarandi slóð: https://vik-hringvegur.netlify.app/

Íbúa- og kynningarfundir verða auglýstir síðar.