Mál í kynningu


5.1.2017

Framleiðsla á 4.000 tonnum af laxi í Arnarfirði á vegum Arctic Sea Farm

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

Kynningartími stendur frá 5. janúar til 24. janúar 2017

Arctic Sea Farm hf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum framleiðslu á 4.000 tonnum af laxi í Arnarfirði.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 24. janúar 2017 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is