Framleiðsla metans og vetnis á Reykjanesi
Mat á umhverfisáhrifum - kynning á matsáætlun
Umsagnarfrestur er til 16. janúar 2023
Swiss Green Gas International hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats fyrir framleiðslu á grænu metani og vetni á Reykjanesi í Reykjanesbæ.
Matsáætlunin er aðgengileg hér. Allir geta kynnt sér áætlunina og veitt umsögn.
Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 16. janúar 2023 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.