Mál í kynningu


29.12.2017

Hólsvirkjun í Fnjóskadal, Þingeyjarsveit

Mat á umhverfisáhrifum - Frummatsskýrsla í kynningu

Kynningartími er frá 5. janúar til og með 16. febrúar 2018

Arctic Hydro hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um allt að 5,5 MW Hólsvirkjun í Fnjóskadal, Þingeyjarsveit.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 5. janúar 2018 til 16. febrúar 2018 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Þingeyjarsveitar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.  

Frummatsskýrslan er aðgengileg hér.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 16. febrúar 2018 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.