Mál í kynningu


18.9.2023

Holtavörðuheiðarlína 1 - Nýr valkostur, Hallarmúlaleið

Umhverfismat - Viðbót við matsáætlun í kynningu.

  • Mynd Holtav.h. 1 - Nýr valkostur

Um er að ræða nýjan valkost, svokallaða Hallarmúlaleið, við legu Holtavörðuheiðarlínu 1 en matsáætlun þeirrar framkvæmdar var til kynningar frá 11. maí til 8. júní 2022 og álit Skipulagsstofnunar um matsáætlunina lá fyrir þann 21. júlí 2022. Hér er í kynningu viðbót við fyrrnefnda matsáætlun og gefst almenningi og lögbundnum umsagnaraðilum kostur á að kynna sér hinn nýja valkost og leggja fram umsagnir.

Viðbót við matsáætlun er aðgengileg á Skipulagsgátt til 18. október 2023 og málsgögn úr fyrra ferli má finna á þessum tengli

Allir geta kynnt sér matsáætlunina og veitt umsögn. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 18. október 2023 til Skipulagsstofnunar í gegnum Skipulagsgátt.