Hreinsistöð fráveitu á Akureyri
Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu
Kynningartími stendur frá 12. október til 23. nóvember 2016.
Norðurorka hf. hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar. Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.
Frummatsskýrslan er aðgengileg hér og á Amtsbókasafninu, skrifstofu Akureyrarbæjar, Skipulagsstofnun og í Þjóðarbókhlöðunni.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 23. nóvember 2016 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.