Mál í kynningu


30.5.2022

Íþróttasvæði Hauka að Ásvöllum í Hafnarfirði

Mat á umhverfisáhrifum - kynningartími umhverfismatsskýrslu

Frestur til umsagna er til og með 15. júlí 2022

Hafnarfjarðarbær hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu fyrir íþróttamannvirki Hauka að Ásvöllum í Hafnarfirði.

Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar.

Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg hér.

Umhverfismatsskýrslan er einnig aðgengileg hjá Skipulagsstofnun í Borgartúni 7b í Reykjavík.

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 15. júlí 2022 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.