Mál í kynningu


14.9.2020

Landfylling í Nýja Skerjafirði, Reykjavík

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

Frestur til athugasemda er til 29. september 2020

Reykjavíkurborg hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum landfyllingar í Nýja Skerjafirði, Reykjavík.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 29. september 2020 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.