Mál í kynningu


6.12.2016

Metanólverksmiðja CRI í Svartsengi

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

Frestur til athugasemda er til 23. janúar 2017

Carbon Recycling International hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um metanólverksmiðu í Svartsengi, Grindavík.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 10. desember 2016 til 23. janúar 2017 á eftirtöldum stöðum: Á bókasafni Grindavíkur, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.  Frummatsskýrslan er aðgengileg hér.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 23. janúar 2017 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.