Ofanflóðavarnir á Norðfirði, Urðarbotn og Sniðgil
Tillaga að matsáætlun í kynningu
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 26. nóvember 2015
Fjarðabyggð hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna ofanflóðavarna á Norðfirði, Urðarbotn og Sniðgil. Tillagan liggur frammi til kynningar frá 3. til 26. nóvember 2015 hjá Skipulagsstofnun og á vef stofnunarinnar. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 26. nóvember 2015 til Skipulagsstofnunar, bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.