Opið hús álver og orkuöflun kynnt í dag, mánudaginn 10. maí
Frummatsskýrslur um umhverfisáhrif álvers Alcoa á Bakka við Húsavík, Kröflvirkjunar II, Þeistareykjavirkjunar og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka eru í kynningu, auk frummatsskýrslu um mat á sameiginlegum umhverfisáhrifum framkvæmdanna fjögurra.
Skipulagsstofnun hvetur fólk til að kynna sér frummatsskýrslurnar en þær eru aðgengilegar til 14. júní 2010 á eftirtöldum stöðum:
Á skrifstofum Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar, í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík og bókasafni Húsavíkur, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.
Einnig er hægt að nálgast frummatsskýrslurnar og viðauka á heimasíðum Landsnets: http://www.landsnet.is, Landsvirkjunar: http://www.lv.is, Þeistareykja ehf.:http://www.theistareykir.is, Alcoa:http://www.alcoa.is og Mannvits: http://www.mannvit.is og heimasíðu Skipulagsstofnunar www.skipulag.is.
Athugasemdir við frummatsskýrslur skulu vera skriflegar. Þær má senda í tölvupósti á netfangið: skipulag@skipulag.is eða
með símbréfi í númerið: 5954165 eða með hefðbundnum pósti til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166 150 Reykjavík.
Frestur til að senda athugasemdir er til og með 14. júní 2010.