Mál í kynningu


25.5.2010

Auglýsing um skipulag - Skaftárhreppur

Sveitarstjórn Skaftárhrepps samþykkti á fundi sínum 18. maí 2010 að auglýsa til kynningar tillögu að endurskoðun á aðalskipulagi Skaftárhrepps fyrir tímabilið 2010-2022, samkv. 1. málsgrein 18. gr. Skipulags og byggingarlaga nr 73/1997 með síðari breytingum.

Skipulagsuppdrættir, greinargerð og umhverfisskýrsla munu vera til sýnis á skrifstofu Skaftárhrepps, Klausturvegi 15 á Kirkjubæjarklaustri frá 25. maí til 22. júní 2010. Ennfremur er tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík og á heimasíðu Skaftárhrepps www.klaustur.is. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skila til skrifstofu Skaftárhrepps fyrir 7. júlí 2010 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.

Sveitarstjóri Skaftárhrepps.