Mál í kynningu


30.5.2011

Auglýsing um tillögu að breytingu á aðalskipulag Vopnafjarðarhrepps 2006-2026, Norðausturvegur, breytt lega og ný tenging við þéttbýlið í Vopnafirði.

Sveitarstjórn Vopnarfjarðarhrepps auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026 ásamt umhverfisskýrslu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:10.000 með greinargerð ásamt umhverfisskýrslu.
Tillagan, ásamt umhverfisskýrslu, verður til sýnis á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps að Hamrahlíð 15 á Vopnafirði á opnunartíma skrifstofu frá föstudeginum 27. maí 2011 til föstudagsins 8. júlí 2011. Jafnframt verður tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.

Skriflegar athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist sveitarstjóra Vopnafjarðarhrepps eigi síðar en kl. 16.00 fimmtudaginn 7. júlí 2011.
Hægt verður að nálgast skipulagsgögn og umhverfisskýrslu á heimasíðu sveitarfélagsins, www.vopnafjardarhreppur.is.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.


Sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps.