Mál í kynningu


25.1.2013

Kísilframleiðsla í Helguvík - endurtekin kynning

Mat á umhverfisáhrifum - kynning frummatsskýrslu

Frestur til athugasemda er til 11. mars 2013.

Stakksbraut 9 ehf. hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um allt að 100.000 tonna kísilverksmiðju í Helguvík í Reykjanesbæ.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 26. janúar til 11. mars 2013  á eftirtöldum stöðum: Á bókasafni Reykjanesbæjar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.  Frummatsskýrslu má jafnframt skoða hér.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 11. mars 2013 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.

Skipulagsstofnun vekur athygli á því að frummatsskýrslan er kynnt að nýju þar sem villa var í eldri skýrslu.  Sú villa hefur nú verið leiðrétt.