Mál í kynningu


22.1.2014

Urðunarsvæði á Vopnafirði

Mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar

Kynningartími stendur yfir frá 22. janúar til 6. mars 2014

Teikn á lofti - ráðgjöf og hönnun, f.h. Vopnafjarðarhrepps, hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Urðunarsvæði á Búðaröxl, Vopnafjarðarhreppi.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 22. janúar til  6. mars 2014 á eftirtöldum stöðum: Á bókasafni Vopnafjarðar og á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrsluna má nálgast hér.
 

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en  6. mars 2014 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.