Mál í kynningu


22.4.2014

Auglýsing um tillögu að Aðalskipulagi Húnaþing vestra 2014-2026

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti 9. apríl sl. að auglýsa tillögu að Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýsingin tekur einnig til 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Við gildistöku nýja aðalskipulagsins fellur úr gildi Aðalskipulag Húnaþings vestra 2000-2014 og Aðalskipulag Bæjarhrepps 1995-2015.

Aðalskipulagsgögnin sem eru sveitarfélags- uppdráttur með þéttbýlisuppdráttum fyrir Hvammstanga og Laugarbakka, greinargerð og umverfisskýrsla dags. 14. apríl 2014 verða til sýnis frá 17. apríl 2014 og til 2. júní 2014. Gögnin verða aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.hunathing.is, á skrifstofu Húnaþings vestra og Skipulagsstofnun á Laugavegi 166, Reykjavík frá og með 17. apríl 2014 til 2. júní 2014. Athugasemdum við aðalskipulagstillöguna skal skila skriflega á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga, eða á netfangið alla@hunathing.is fyrir 2. júní 2014.

Skúli Þórðarson
sveitarstjóri Húnaþings vestra

Auglýst tillaga