Efnistaka í Seljadalsnámu í Mosfellsbæ
Mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar
Kynningartími stendur frá 13. júní til 25. júlí 2014
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 13. júní 2014 til 25. júlí 2014 á eftirtöldum stöðum: Á bókasafni Mosfellsbæjar og á skrifstofu Mosfellsbæjar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslu má skoða hér
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 25. júlí 2014 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000.