Mál í kynningu


15.3.2022

Nýjar flæðigryfjur að Grundartanga, Hvalfjarðarsveit

Mat á umhverfisáhrifum - kynning matsáætlunar

Frestur til umsagna er til og með 19. apríl 2022

Elkem og Norðurál hafa lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats fyrir nýjar flæðigryfjur á hafnarsvæði Grundartanga í Hvalfjarðarsveit.

Matsáætlun liggur frammi á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3 og hjá Skipulagsstofnun.

Matsáætlunin er jafnframt aðgengileg hér.

Allir geta kynnt sér áætlunina og veitt umsögn.

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 19. apríl 2022 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.