Mál í kynningu


9.3.2017

Reykjanesvirkjun, meðferð og förgun útfellinga með aukna náttúrulega geislavirkni

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

Kynningartími stendur frá 9. mars til 23. mars 2017

HS Orka hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum meðferðar og förgunar útfellinga með aukna náttúrulega geislavirkni við Reykjanesvirkjun.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 23. mars 2017 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is