Mál í kynningu


13.5.2020

Sjókvíaeldi Arnarlax í Ísafjarðardjúpi, framleiðsla á 10.000 tonnum af laxi á ári

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

  • Arnarlax Ísafjarðardjúp

Kynningartími stendur frá 13. maí til 26. júní 2020.

Arnarlax ehf. hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar.

Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.

Frummatsskýrsluna og viðauka er hægt að nálgast hér og á Safnahúsinu á Ísafirði, Skipulagsstofnun og Þjóðarbókhlöðunni.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 26. júní 2020 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.

Kynningarfundur vegna frummatsskýrslu verður haldin miðvikudaginn 10. júní 2020 í Ráðhúsi Bolungarvíkurkaupstaðar, Aðalstræti 12. Fundurinn stendur frá 16:00-17:00.