Mál í kynningu


4.8.2022

Stækkun 2. áfanga Mjóeyrarhafnar á Reyðarfirði

Mat á umhverfisáhrifum - kynning á umhverfismatsskýrslu

Kynningartími umhverfismatsskýrslu er til 19. september 2022

Fjarðabyggðarhafnir hafa lagt fram umhverfismatsskýrslu um stækkun Mjóeyrarhafnar á Reyðarfirði. 

Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar.

Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg hér  og á skrifstofu Fjarðabyggðar og hjá Skipulagsstofnun í Borgartúni 7b í Reykjavík.

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 19. september 2022 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.