Mál í kynningu


7.1.2020

Stækkun fiskeldis Stofnfisks við Vogavík, Sveitarfélaginu Vogum

Mat á umhverfisáhrifum - kynning tillögu að matsáætlun

Frestur til athugasemda er til 20. janúar 2020

Stofnfiskur hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum stækkunar fiskeldis við Vogavík, Sveitarfélaginu Vogum.

Tillagan er aðgengileg hér. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 20. janúar 2020 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.