Mál í kynningu


14.3.2023

Stækkun Keflavíkurflugvallar

Umhverfismat framkvæmda - Kynning umhverfismatsskýrslu

  • Mynd - Keflavíkurflugvöllur

Kynningartími stendur til 2. maí 2023.

Isavia hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu um stækkun Keflavíkurflugvallar. 

Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar.

Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg hér ásamt viðaukum

Skýrslan liggur frammi á skrifstofum Suðurnesjabæjar og Reykjanesbæjar og hjá Skipulagsstofnun Borgartúni 7b, 105 Reykjavík, frá 15. mars til 2. maí 2023.

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 2. maí 2023 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is

Vakin er athygli á að Isavia stendur fyrir opnum kynningarfundi fyrir almenning í Stapa í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ mánudaginn 3. apríl klukkan 20:00.