Mál í kynningu


16.3.2023

Þjónustumiðstöð í Landmannalaugum

Umhverfismat framkvæmda - Kynning umhverfismatsskýrslu

Kynningartími stendur til 4. maí 2023.

Rangárþing ytra hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu um þjónustumiðstöð í Landmannaalaugum. 

Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar.

Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg hér ásamt viðauka

Skýrslan liggur frammi á skrifstofu Rangárþings ytra og hjá Skipulagsstofnun Borgartúni 7b, 105 Reykjavík, frá 17. mars til 4. maí 2023.

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 4. maí 2023 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is

Vakin er athygli á að haldinn verður kynningarfundur um framkvæmdina og umhverfismat hennar fyrir almenning í Menningarsalnum á Hellu fimmtudaginn 30. mars kl. 17 og eru allir velkomnir.