Mál í kynningu


30.10.2020

Þverárfjallsvegur í Refasveit og Skagastrandarvegur um Laxá

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

Kynningartími stendur frá 30. október til 11. desember 2020

Vegagerðin hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar.

Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.

Frummatsskýrsla ásamt viðaukum liggur frammi til kynningar á bæjarskrifstofu Blönduósbæjar og hjá Skipulagsstofnun. Gögnin má einnig nálgast á eftirfarandi slóð: 

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 11. desember 2020 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.