Tillaga að Aðalskipulagi Akraness 2021-2033
Athugasemdafrestur er til 5. ágúst 2022
Bæjarstjórn Akraness hefur auglýst tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi, þ.e. Aðalskipulagi Akraness 2021-2033 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu bæjarfélagsins, Dalbraut 4, og hjá Skipulagsstofnun. Auk þess er hægt að nálgast aðalskipulagsgögn á vefnum www.akranes.is.
Athugasemdir þurfa að berast bæjarskrifstofu Akraness, Dalbraut 4, 300 Akranesi, eða á netfangið skipulag@akranes.is eigi síðar en 5. ágúst 2022.