Tillaga að Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2020-2032
Athugasemdafrestur er til 18. maí 2022
Rangárþing eystra hefur auglýst tillögu að aðalskipulagi fyrir Rangárþing eystra, þ.e. Aðalskipulag Rangárþings eystra 2020-2032 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu Rangárþings eystra, á vef sveitarfélagsins www.hvolsvollur.is og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir þurfa að berast skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa að Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur eða á netfangið bygg@hvolsvollur.is. eigi síðar en 18. maí 2022.