Mál í kynningu


24.9.2018

Tillaga að Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016 - 2028

Athugasemdafrestur er til 7. nóvember 2018

Rangárþing  ytra hefur auglýst tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi fyrir Rangárþing ytra, þ.e. Aðalskipulag Rangárþings  ytra 2016 - 2028, samkvæmt 31. gr. skipulagslaga.

Tillagan er til sýnis í afgreiðslu sveitarfélagsins að Suðurlandsvegi 1-3 á Hellu og hjá Skipulagsstofnun. Auk þess er hægt að nálgast aðalskipulagsgögn á vefnum www.ry.is .

Athugasemdir þurfa að berast til skipulagsfulltrúa að Suðurlandsvegi 1-3, 850 Hellu eða á netfangið birgir@ry.is eigi síðar en 7. nóvember 2018.