Mál í kynningu


8.7.2022

Tillaga að Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2021-2033

Athugasemdafrestur er til 26. ágúst 2022

Reykhólahreppur hefur auglýst tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi fyrir Reykhólahrepp, þ.e. Aðalskipulag Reykhólahrepps 2021-2033 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga. 

Tillagan er til sýnis á skrifstofu Reykhólahrepps, að Maríutröð 5a og hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, Reykjavík. Auk þess er hægt að nálgast aðalskipulagsgögn á vefnum www.skipulagreykholahrepps.is.

Athugasemdir þurfa að berast til skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, 380 Reykhólum eða á netfangið skipulag@dalir.is eigi síðar en 26. ágúst 2022.