Tillaga að Aðalskipulagi Skaftárhrepps 2019-2031
Athugasemdafrestur hefur verið framlengdur til 11. ágúst 2022
Skaftárhreppur hefur auglýst tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi fyrir Skaftárhrepp, þ.e. Aðalskipulag Skaftárhrepps 2019-2031 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga. Samhliða eru auglýstar athugasemdir Skipulagsstofnunar um skipulagstillöguna í bréfi dags. 12. maí 2022.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins, Klausturvegi 4 á Kirkjubæjarklaustri og hjá Skipulagsstofnun. Auk þess er hægt að nálgast aðalskipulagsgögn á vefnum www.klaustur.is.
Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Klausturvegi 4, 880 Kirkjubæjarklaustri eða á netfangið bygg@klaustur.is en athugasemdafrestur hefur verið framlengdur til 11. ágúst 2022.