Mál í kynningu


2.1.2024

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar , vegna hringvegar um Borgarnes og stækkun íbúðarbyggðar Í12

Athugasemdafrestur er til 14. febrúar 2024

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 vegna breyttrar legu hringvegar um Borgarnes og stækkun íbúðarbyggðar Í12.

Skipulagsgögn eru til sýnis á vef sveitarfélagsins www.borgarbyggd.is og í Skipulagsgátt.

Athugasemdir þurfa að berast til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa, eða í Skipulagsgátt eigi síðar en 14. febrúar 2024.