Mál í kynningu


22.6.2023

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Djúpavogshrepps, vegna landnotkunarbreytinga á Djúpavogi

Athugasemdafrestur er til 27. júlí 2023

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Djúpavogshrepps 2008-2020. Breytingin er sett fram í 6 liðum og felur meðal annars í sér stækkun á athafna- og hafnarsvæðum, nýtt fráveitumannvirki, stækkun íbúðasvæðis, sjólögn og gönguleið.

Skipulagsgögn eru til sýnis á skrifstofu sveitarfélagsins og á Skipulagsgátt

Athugasemdir þurfa að berast í gegnum Skipulagsgátt eigi síðar en 27. júlí 2023