Mál í kynningu


4.6.2018

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Fjallabyggðar, íbúðarsvæði á malarvellinum á Siglufirði

Athugasemdafrestur er til 1. ágúst 2018

Bæjarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028 vegna íbúðarsvæðis (Í2) á malarvellinum á Siglufirði. Samtímis er auglýst deiliskipulag af svæðinu.


Tillagan er til sýnis á bæjarskrifstofunum á Siglufirði, á www.fjallabyggd.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast í Ráðhús Fjallabyggðar að Gránugötu 24, Siglufirði eða á netfangið iris@fjallabyggd.is eigi síðar en 1. ágúst 2018.