Mál í kynningu


14.3.2024

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi fyrrum Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna stækkunar afþreyingar- og ferðamannasvæðis, Sauðárkróki

Athugasemdafrestur er til 1. maí 2024

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 vegna stækkunar afþreyingar- og ferðamannasvæðis AF-402 á Sauðárkróki.

Skipulagsgögn eru til sýnis á vef sveitarfélagsins og í Skipulagsgátt.

Athugasemdir þurfa að berast í gegnum Skipulagsgátt, til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhúss Skagafjarðar, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki, eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is.