Mál í kynningu


9.12.2021

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur vegna hreinsivirkis, stíga og stækkun golfvallar

Athugasemdafrestur er til 14. janúar 2022

  • Hreinsivirki, golfvöllur og stígar, Grindavík

Bæjarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkur 2018-2032. Fyrirhuguð breyting er þríþætt, um er að ræða hreinsivirki fyrir skólp frá hafnarsvæðinu í Grindavík og frárennslislögn til suðurs á Hópsnes og út í sjó, bæta á við göngu- og reiðhjólastígum frá íbúðarsvæðum vestast í Grindavík sem tengjast núverandi leiðum meðfram Nesvegi og loks eru áform um stækkun golfvallar Grindavíkur við Húsatóftir (ÍÞ2) til austurs um 1 ha. 
Tillagan er til sýnis í afgreiðslu bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar að Víkurbraut 62 (2.hæð), 240 Grindavík, á vef sveitarfélagsins www.grindavik.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast skriflega á netfangið atligeir@grindavik.is eða til Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, eigi síðar en 14. janúar 2022.