Mál í kynningu


4.3.2016

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar vegna iðnaðarsvæðis i7

Athugasemdafrestur er til 13. apríl 2016

  • Staðsetning breytingar

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010-2030 vegna stækkunar á iðnaðarsvæði i7 fyrir fiskeldi.

Tillagan er til sýnis á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar að Víkurbraut 62,  á grindavik.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar eða til skipulagsfulltrúa á netfangið armann@grindavik.is, merktar „Aðalskipulagsbreyting iðnaðarsvæði i7“, eigi síðar en 13. apríl 2016.

Samhliða er auglýst tillaga sveitarstjórnar að deiliskipulagi fyrir fiskeldi á iðnaðarsvæði i7.