Mál í kynningu


15.11.2023

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hörgársveitar, vegna Dalvíkurlínu 2, reiðleiða, göngu- og hjólastíga

Athugasemdafrestur er til 1. janúar 2024

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 vegna Dalvíkurlínu 2 og breyttrar legu reiðleiða, göngu- og hjólastíga.

Skipulagsgögn eru til sýnis á vef sveitarfélagsins, www.horgarsveit.is.

Athugasemdir þurfa að berast til Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is, eigi síðar en 1. janúar 2024.