Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hornafjarðar vegna Borgarhafnar
Athugasemdafrestur er til 27. september 2021
Bæjarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030, sem felur í sér að 5 ha af landbúnaðarsvæði á jörðinni Borgarhöfn er breytt í verslunar- og þjónustusvæði, VÞ45.
Skipulagstillagan er til sýnis í anddyri Ráðhússins, Hafnarbraut 27 frá og með 16. ágúst 2021 til og með 27. september 2021, á heimasíðu sveitarfélagsins www.hornafjordur.is og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir þurfa að berast skriflega á bæjarskrifstofur Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn eða á netfangið skipulag@hornafjordur.is eigi síðar en 27. september 2021.