Mál í kynningu


12.5.2022

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar vegna fjölgunar íbúða á miðsvæði 116-M

Athugasemdafrestur er til 27. júní 2022

  • Miðsvæði Mosfellsbæjar

Bæjarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030 vegna fjölgunar íbúða á miðsvæði 116-M.

Tillagan er til sýnis á upplýsingatorgi Mosfellsbæjar, Þverholti 2, á vef sveitarfélagsins www.mos.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast til skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ eða með tölvupósti á skipulag@mos.is eða larag@mos.is eigi síðar en 27. júní 2022.