Mál í kynningu


18.12.2020

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar, vegna stækkunar á landbúnaðarsvæði í landi Dallands

Athugasemdafrestur er til 8. febrúar 2021

  • Dalland

Bæjarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011 – 2030 þar sem um 6 ha af óbyggðu svæði í landi Dallands er breytt í landbúnaðarsvæði.

Tillagan er til sýnis á upplýsingatorgi Mosfellsbæjar, Þverholti 2, á vef sveitarfélagsins www.mos.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast til skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbær eða í tölvupósti á skipulag@mos.is fyrir dagslok 8. febrúar 2021.