Mál í kynningu


4.5.2016

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps, breytt veglína, varnargarður, atvinnusvæði o.fl. í Vík

Athugasemdafrestur er til 10. júní 2016

  • ASK Mýrdalshreppur

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps vegna Víkurþorps.

Tillagan er til sýnis til 10. júní 2016 hjá fulltrúa skipulags- og byggingarmála Mýrdalshreppi, Austurvegi 17, Vík, á heimasíðu Mýrdalshrepps, vik.is  og hjá Skipulagsstofnun. Athugasemdir Skipulagsstofnunar, sbr. bréf dags. 20. apríl 2016, eru auglýstar með tillögunni.

Athugasemdir þurfa að berast skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is eigi síðar en 10. júní 2016