Mál í kynningu


24.11.2020

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps vegna austurhluta Víkur

Athugasemdafrestur er til 30. desember 2020

  • Vík

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012 – 2028, þar sem gerðar eru nokkrar breytingar á landnotkun í austurhluta Víkurþorps.

Tillagan er til sýnis hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, á vef sveitarfélagsins www.vik.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, eða í tölvupósti á bygg@vik.is eigi síðar en 30. desember 2020