Mál í kynningu


9.11.2018

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna flugbrautar/lendingarstaðar í landi Guðnastaða/Skækils

Athugasemdafrestur er til 24. desember 2018

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 vegna flugbrautar/lendingarstaðar í landi Guðnastaða/Skækils.

Tillagan er til sýnis á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli, á vef sveitarfélagsins www.hvolsvollur.is og hjá Skipulagsstofnun.

 Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa eigi síðar en 24. desember 2018.