Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna frístundabyggðar í Eyvindarholti
Athugasemdafrestur er til 24. desember 2018
Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 vegna frístundabyggðar í Eyvindarholti.
Tillagan er til sýnis á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli, á vef sveitarfélagsins www.hvolsvollur.is og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa eigi síðar en 24. desember 2018.