Mál í kynningu


7.9.2020

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykhólahrepps vegna vatnsaflsvirkjunar í landi Garpsdals

Athugasemdafrestur er til 15. október 2020

  • Vatnsaflsvirkjun í Garpsdal

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykhólahrepps og tillögu að deiliskipulagi vegna vatnsaflsvirkjunar við Múlá í landi Garpsdals

Tillagan er til sýnis á skrifstofu Reykhólahrepps, stjórnsýsluhúsinu við Maríutröð Reykhólum, Reykhólahreppi, á heimasíðu sveitarfélagsins www.reykholar.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu Reykhólahrepps eða á netfangið skipulag@dalir.is eigi síðar en 15. október 2020.