Mál í kynningu


5.7.2018

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur, afmörkun landnotkunar í samræmi við lóðamörk

Athugasemdafrestur er til 17. ágúst 2018

Borgarráð hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 vegna afmörkunar svæða við Vesturhlíð, Völvufell og Vogabyggð.

Tillagan er til sýnis í þjónustuveri Reykjavíkurborgar í  Borgartúni, á www.reykjavik.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast til umhverfis- og skipulagssviðs Borgartúni 12-14 eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 17. ágúst 2018.