Mál í kynningu


29.3.2019

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna Esjumela

Athugasemdafrestur er til 10. maí 2019.

Reykjavíkurborg hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 vegna breyttra skipulagsákvæða á athafnasvæði á Esjumelum (AT5)

Tillagan er til sýnis í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 10. maí 2019.