Mál í kynningu


1.3.2021

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Seltjarnarnesbæjar, vegna verslunar- og þjónustu við Ráðagerði

Athugasemdafrestur er til 18. apríl 2021

Bæjarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Seltjarnarnesbæjar 2015-2033 vegna verslunar- og þjónustusvæðis VÞ-1 við Ráðagerði þar sem gert er ráð fyrir veitingarekstri og fjölgun bílastæða.

Tillagan er til sýnis bæjarskrifstofu Seltjarnarnesbæjar, Austurströnd 2, Seltjarnarnesi, á vef sveitarfélagsins www.seltjarnarnes.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast á postur@seltjarnarnes.is eða á bæjarskrifstofu Seltjarnarnesbæjar, Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnesi, eigi síðar en 18. apríl 2021.