Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Hraunvellir
Athugasemdafrestur er til 8. apríl 2016
Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016 vegna nýs verslunar- og þjónustusvæðis (V12) í landi Hraunvalla.
Tillagan er til sýnis til 8. apríl 2016 hjá skipulagsfulltrúa á Dalbraut 12 á Laugarvatni, á vef skipulagsfulltrúa og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir þurfa að berast til skipulagsfulltrúa eða á netfangið petur@sudurland.is eigi síðar en 8. apríl 2016.